Apríl, 2022

09apr14:0016:00Handritasmiðja Árnastofnunar fyrir börn og fjölskyldur á Landnámssetrinu

Nánari upplýsingar

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum ætlar að heimsækja Landnámssetrið og bjóða upp á skemmtilega smiðju fyrir börn og fjölskyldur.
Hægt verður að setja sig í stellingar handritaskrifara fortíðarinnar í Handritasmiðju frá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Gestum býðst að munda fuglsfjaðrir, dýfa þeim í blek soðið úr jurtum og rita svo hugsanir sínar á bókfell, líkt og gert var á miðöldum.
Hægt verður að skoða verkfærin sem notuð voru við bókagerðina, fá fræðslu um það hvernig skinn voru verkuð og bækur svo búnar til.
Umsjónarmenn smiðjunnar eru Eva María Jónsdóttir, miðaldafræðingur frá Stofnun Árna Magnússonar og Fjóla K. Guðmundsdóttir, þjóðfræðingur og verkefnisstjóri við kynningarmál hjá Stofnun Árna Magnússonar.
Fyrri smiðjan verður á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi miðvikudaginn 6. apríl kl. 15:30
Seinni smiðjan verður í Landnámssetrinu laugardaginn 9.apríl kl. 14.00
Smiðjan er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Klukkan

(Laugardagur) 14:00 - 16:00



X