Maí, 2022

29maí12:0014:00GRETTISSAGA Í FLUTNING EINARS KÁRASONAR

Nánari upplýsingar

Einn af okkar virtustu rithöfundum og rómuðustu sagnamönnum Einar Kárason mun stíga á stokk á Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi og flytja GRETTISSÖGU.
Einar er sá listamaður sem hefur verið með flestar frumsýningar í Landnámssetrinu, en mörgum er í fersku minni frábær flutningur hans á skáldinu Sturlu og Óvinafagnaði. Hann er fyrir vikið orðinn jafn virtur sem sögumaður og rithöfundur. Nú ætlar hann að segja okkur eina vinsælustu Íslendingasöguna, söguna um ógæfumanninn Gretti Ásmundsson.

Miðasala á tix.is

Klukkan

(Sunnudagur) 12:00 - 14:00



X