SALKA - ástin og dauðinn

11apr16:0018:00SALKA - ástin og dauðinnkl. 16:00

Nánari upplýsingar

Í febrúar 2026 var einleikurinn Salka – ástin og dauðinn frumsýndur á Sögulofti Landnámssetursin í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Eftir Unni Ösp Stefánsdóttir.  Leikverkið er byggt á skáldsögu Halldórs Laxness Sölku Völku. Sýningin hefur hlotið fádæma góðar viðtökur og var tilnefnd til þriggja Grímuverðlauna. Leikstjóri  Björn Thors, lýsing Björn Bergsteinn Guðmundsson, leikmynd og búningar Filippía I Elísdóttir, tónlistarráðgjöf Davíð Þór Jónsson.

KAUPA MIÐA

„…en tvær sálir geta verið svo fjarlægar hvor annarri jafnvel þó þær hafi einusinni búið í sama líkama.“  

Salka Valka er ein eftirminnilegasta persóna Halldórs Laxness. Í sýningunni mun Unnur Ösp þræða sig í gegnum sögu hennar, umvafin tónlist úr plötusafni Halldórs Laxness sem var skáldinu innblástur við skrif bókarinnar. Í návígi við áhorfendur kallar Unnur fram stórbrotnar persónur sögunnar, með magnaðan texta Laxness að vopni. Í gegnum hættuleg en heillandi sambönd persónanna ætlar Unnur að leita að Sölku í sér og Sölku í okkur öllum.

Stofnendur Landnámssetursins, þau Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, settu meðal annars upp geysivinsæla sýningu á Sjálfstæðu fólki Halldórs Laxness í Þjóðleikhúsinu árið 1999, og tengsl Þjóðleikhússins við setrið hafa verið sterk í gegnum tíðina.

Höfundur skáldsögu: Halldór Laxness Höfundur leikgerðar: Unnur Ösp Stefánsdóttir Leikari: Unnur Ösp Stefánsdóttir. Uppsetning Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi í samstarfi við Þjóðleikhúsið.

Sýningin er byggð á fyrri hluta Sölku Völku eftir Halldór Laxness, Þú vínviður hreini.

Klukkan

11. Apríl, 2027 16:00 - 18:00(GMT+00:00)