Maí, 2021

15maí20:0022:00REFILLINNSaga Bayeux refilsins í flutningi Reynis Tómasar Geirssonar

Nánari upplýsingar

Reynir Tómas er mörgum að góðu kunnur því hann var til margra ára yfirlæknir á Kvennadeild Landspítalans. Eiginkona hans Steinunn Jóna Sveinsdóttir þýddi skáldssöguna Dvergurinn frá Normandí eftir Lars-Henrik-Olsen en hún fjallar um hvernig hinn frægi Bayeux refill var saumaður í léreft að öllum líkindum í Kent á Englandi um 1076. Refillinn er samfelld myndaröð og lýsir einni mestu orrustu sem orðið hefur á Bretlandseyjum, orustunni við Hastings árið 1066 þegar innrásarlið frá Normandí réðst inn í England og hafði sigur.  Refillinn sem er 70,34 metra langur er eitt mesta þjóðargersemi Frakka enn í dag. Steinunn lést áður en henni tókst að ljúka útgáfu bókarinnar og Reynir lofaði henni að hann myndi ljúka verkinu. Nú er bókin komin út –  afar vönduð og prýdd fjölda mynda.

Reynir Tómas segir ekki frá efni bókarinnar í sýningunni heldur frá tilurð refilsins, saumaaðferðinni, – refilsaum sem er frá tímum víkinga og hvernig refillinn hefur varðveist í gegnum aldirnar. Einnig rekur hann söguna sem myndirnar á reflinum túlka. Reynir er afar góður sögumaður og innblásinn af efninu.

Klukkan

(Laugardagur) 20:00 - 22:00



X