Júní, 2021

25jún20:3022:30Tónleikar hljómsveitarinnar BREKá Söguloftinu kl. 20:30

Brek

Nánari upplýsingar

Hljómsveitina Brek skipa þau Harpa Þorvaldsdóttir- söngur og píanó, Sigmar Þór Matthíasson – kontrabassi, Guðmundur Atli Pétursson – mandolin og Jóhann Ingi Benediktsson – gítar og söngur. Lög sveitarinnar eru sungin á íslensku en hún leggur áherslu á að nota fjölskrúðugt orðbragð og nýta þannig hinn mikla og fallega orðaforða sem íslenskan hefur upp á að bjóða.  Lög hljómsveitarinnar sækja innblástur sinn meðal annars í íslenska náttúru og veðrabrigði.  Áhrif tónlistarinnar koma úr ýmsum áttum en Brek vill leitast við að tvinna þeim saman í sinn hljóðheim og leitast þannig við að brjóta niður múra á milli tónlistarstefna ásamt því að tengja íslenskan þjóðlagaarf við aðrar tegundir þjóðlagatónlistar.  Íslenska texta og raddir í bland við samspil rythmísks og dínamísks samtals hljóðfæranna notar Brek til að drífa tónlistina áfram.   Sjá nánar á www.brek.is  

Kaupa miða

Miðaverð kr. 2500

Klukkan

(Föstudagur) 20:30 - 22:30



X