Febrúar, 2026
13feb20:0022:00SALKA - ástin og dauðinn kl. 20:00 - Uppselt

Nánari upplýsingar
Í tilefni af tuttugu ára afmæli Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi taka Þjóðleikhúsið og Landnámssetrið höndum saman og bjóða upp á nýjan einleik. Unnur Ösp Stefánsdóttir hefur samið og mun flytja
Nánari upplýsingar
Í tilefni af tuttugu ára afmæli Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi taka Þjóðleikhúsið og Landnámssetrið höndum saman og bjóða upp á nýjan einleik. Unnur Ösp Stefánsdóttir hefur samið og mun flytja nýtt leikverk byggt á skáldsögu Halldórs Laxness Sölku Völku á Sögulofti setursins.
„…en tvær sálir geta verið svo fjarlægar hvor annarri jafnvel þó þær hafi einusinni búið í sama líkama.“
Salka Valka er ein eftirminnilegasta persóna Halldórs Laxness. Í sýningunni mun Unnur Ösp þræða sig í gegnum sögu hennar, umvafin tónlist úr plötusafni Halldórs Laxness sem var skáldinu innblástur við skrif bókarinnar. Í návígi við áhorfendur kallar Unnur fram stórbrotnar persónur sögunnar, með magnaðan texta Laxness að vopni. Í gegnum hættuleg en heillandi sambönd persónanna ætlar Unnur að leita að Sölku í sér og Sölku í okkur öllum.
Stofnendur Landnámssetursins, þau Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, settu meðal annars upp geysivinsæla sýningu á Sjálfstæðu fólki Halldórs Laxness í Þjóðleikhúsinu árið 1999, og tengsl Þjóðleikhússins við setrið hafa verið sterk í gegnum tíðina.
Höfundur skáldsögu: Halldór Laxness Höfundur leikgerðar: Unnur Ösp Stefánsdóttir Leikari: Unnur Ösp Stefánsdóttir. Uppsetning Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi í samstarfi við Þjóðleikhúsið.
Sýningin er byggð á fyrri hluta Sölku Völku eftir Halldór Laxness, Þú vínviður hreini.
Klukkan
(Föstudagur) 20:00 - 22:00