Nóvember, 2019

29nóv20:0022:00Æskujól - einstakir jólatónleikarHeiðursgestur Högni Egilsson

Nánari upplýsingar

Meginþemað er fjölskyldan saman um jólin. Þetta eru tónleikar fjölskyldu og vina. Með ást og umhyggju fyrir hvort öðru búum við til okkar allra æskujól.

Ari Ólafsson er landsmönnum kunnur. Tók ma þátt í evróvision fyrir okkar hönd árið 2018. Hann er gríðarlega efnilegur tenórsöngvari og verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni.

Karolína Sif er 18. ára stúlka frá Bolungarvík. Karó er gríðarlega efnileg söngkona og hefur gefið út eitt lag á spotify með Jógvan Hansen ,, Þú ert sú eina,,.

Pétur Ernir er 19. ára gamall Ísfirðingur. Pétur er hálfgert undrabarn og framúrskarandi hæfileikaríkur listamaður. Hann bæði spilar á píanó á tónleikunum sem og syngur. Einnig sér hann um allar útsetningar.

Mun þríeykið ma flytja frumsamið lag eftir Pétur og Karó á tónleikunum. Að sjálfsögðu heitir lagið ,, Æskujól,,. Það er gæsahúðarlag fyrir allan peninginn.

Heiðursgestur í Landnámssetrinu er Högni Egilsson úr hljómsveitinni Hjaltalín. Nafn hans er þegar orðið landsþekkt

Klukkan

(Föstudagur) 20:00 - 22:00



X