Magnús Ólafsson sagnamaður segir frá einum dramatískasta atburði Íslandssögunnar – síðustu aftökunni sem fram fór 12. janúar árið 1830 kl 14. Þessir atburðir tengdust fjölskyldu Magnúsar persónulega og segir hann frá ótrúlegum atvikum í því samhengi. Atvikum sem ekki hafa farið í hámæli og erfitt er að skýra. Magnús er sagnamaður af guðs náð og heldur áhorfendum föngnum frá upphafi til enda. Frumsýning 12. janúar kl. 14.