Nóvember, 2019

14nóv20:0021:00ÞORSTEINSVAKA

Nánari upplýsingar

Dagskrá til heiðurs minningu Þorsteins frá Hamri.  Sagt verður frá skáldinu og lesið úr verkum hans.

Að þessu ljóða- og sagnakvöldi koma einstaklingar úr Borgarnesi og Reykjavík.
Til máls taka: Guðrún Nordal, Þórarinn Jónsson, Vigdís Grímsdóttir, Theodór Þórðarson, Ástráður Eysteinsson, Sigurbjörg Þrastardóttir, Valdimar Tómasson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir.

Þann 1. október sl. var haldinn í Iðnó stofnfundur nýs félags sem ber heitið Arfur Þorsteins frá Hamri. Markmið félagsins er að sýna arfleifð Þorsteins ræktarsemi sem og þeim menningararfi sem hann tók í fang sér. Félagið mun standa fyrir ýmsum viðburðum, einkum á ævislóðum Þorsteins, í Borgarfirði og á höfuðborgarsvæðinu.

Dagskráin hefst kl. 20 og stendur í rúma klukkustund, aðgangur er ókeypis

 

Klukkan

(Fimmtudagur) 20:00 - 21:00



X