Desember, 2018

02des15:0016:00Bókakynning á Korku

Nánari upplýsingar

Sunnudaginn 2. desember, þann fyrsta í aðventu, verður jólaleg stemming á söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi milli kl 15:00 – 16:00.

Systurnar og Borgnesingarnir Sigríður og Ásrún Magnúsdætur lesa fyrir börnin úr bók sinni Korkusögur. Fjörug sögustund og heitt kakó verður á tilboði til að ylja gestum í skammdeginu.

Ekki gleyma þér í amstri jólanna, kíktu við og eigðu notalega stund með fjölskyldunni.

Skemmtilegur leynigestur kíkir líka við!

Við hlökkum til að sjá þig

Klukkan

(Sunnudagur) 15:00 - 16:00



X