Febrúar, 2019
02feb20:0022:00Auður djúpúðga - sagan öll - Kl. 20:00

Nánari upplýsingar
Það er hinn vinsæli rithöfundur Vilborg Davíðsdóttir sem hér stígur á stokk á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi og segir söguna alla af konunni sem á engan sinn líka í landnámssögunni.
Nánari upplýsingar
Það er hinn vinsæli rithöfundur Vilborg Davíðsdóttir sem hér stígur á stokk á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi og segir söguna alla af konunni sem á engan sinn líka í landnámssögunni. Vilborg lauk þríleik sínum um Auði djúpúðgu síðasta haust með bókinni Blóðug jörð og hafa gagnrýnendur og lesendur hlaðið verkið lofi.
Í Laxdælu segir um ævintýralegan flótta Auðar Ketilsdóttur frá Skotlandi til Íslands með sjö sonarbörn sín: „Þykjast menn varla dæmi til vita að einn kvenmaður hafi komist í brott úr þvílíkum ófriði með jafnmiklu fé og föruneyti. Má af því marka að hún var mikið afbragð annarra kvenna.“
Vilborg fer með áhorfendur í ferðalag um slóðir Auðar á Bretlandseyjum og í kjölfar hennar til eylandsins á enda veraldar þar sem ár og vötn voru sögð iða af fiski, jökulhettur gnæfa við himin og sjálf jörðin spúa eldi. Saman við viðburðaríkt líf Auðar á Írlandi og Skotlandi fléttast atburður sem markaði upphaf landnámsins blóði: þrælauppreisn á suðurströnd Íslands.
Miðaverð kr. 3.500
Smelltu hér til að fara á miðasölu
Klukkan
(Laugardagur) 20:00 - 22:00