Nóvember, 2021

04nóv20:0022:00Stormfuglar - Einar KárasonÁhrifamil og grípandi saga

Nánari upplýsingar

Enn á ný kemur Einar Kárason rithöfundur til okkar á Söguloftið í Landnámssetrinu með hina mögnuðu sögu Stormfugla. Frásögnin er byggð á samnefndri bók Einars sem kom út árið 2018 og fékk frábærar viðtökur. Þar segir hann magnaða sögu um afdrif íslenskra sjómanna sem lenda í aftakaveðri úti fyrir Nýfundnalandi og byggir á sönnum atburðum.

Einar Kárason er einn vinsælasti rithöfundur þjóðarinnar og hefur slegið í gegn sem sagnamaður með sýningum sínum á hér Söguloftinu í Landnámssetrinu og víðar.

Stormfuglar er áhrifamikil saga um örvæntingarfulla baráttu íslenskra sjómanna við miskunnarlaus náttúruöfl, á síðutogara sem lendir í aftakaveðri vestur undir Nýfundnalandi. Togarinn hleður á sig ísingu í nístandi frosti og ofsaroki, og klakabrynjan er við það að sliga drekkhlaðið skipið. Frá miðunum í kring berast neyðarköll annarra skipa sem eins er ástatt um. Baráttan er upp á líf og dauða.

Áhorfendur mega eiga von á óvenjulegri og áhrifamikilli stund, þar sem sagnaþulurinn Einar flytur þessa áhrifamiklu  sögu í návígi við áhorfendur.

Miðaverð kr. 3500           Miðasala á  tix.is 

Tilboð í tveggja rétta kvöldverð fyrir sýningu:

  1.  Portvínslöguð villisveppasúpa og grillsteikt lambafille           kr. 4900
  2.  Portvínslöguð villisveppasúpa og ofnbakaður þorskhnakki. kr. 3900

Borðapantanir á landnam@landnam.is eða í síma 437 1600

Klukkan

(Fimmtudagur) 20:00 - 22:00



X