Maí, 2019

14maí17:0019:00Auður djúpúðga - sagan öll - aukasýning Kl. 17

Nánari upplýsingar

Vegna hópapöntunar verður aukasýning á Auði djúpúðgu, en aðeins örfá sæti í boði.

Það er hinn vinsæli rithöfundur Vilborg Davíðsdóttir sem hér stígur á stokk á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi og segir söguna alla af konunni sem á engan sinn líka í landnámssögunni. Vilborg lauk þríleik sínum um Auði djúpúðgu síðasta haust með bókinni Blóðug jörð og hafa gagnrýnendur og lesendur hlaðið verkið lofi.

Í Laxdælu segir um ævintýralegan flótta Auðar Ketilsdóttur frá Skotlandi til Íslands með sjö sonarbörn sín: „Þykjast menn varla dæmi til vita að einn kvenmaður hafi komist í brott úr þvílíkum ófriði með jafnmiklu fé og föruneyti. Má af því marka að hún var mikið afbragð annarra kvenna.“

Vilborg fer með áhorfendur í ferðalag um slóðir Auðar á Bretlandseyjum og í kjölfar hennar til eylandsins á enda veraldar þar sem ár og vötn voru sögð iða af fiski, jökulhettur gnæfa við himin og sjálf jörðin spúa eldi. Saman við viðburðaríkt líf Auðar á Írlandi og Skotlandi fléttast atburður sem markaði upphaf landnámsins blóði: þrælauppreisn á suðurströnd Íslands.

Miðaverð kr. 3.500
Smelltu hér til að fara á miðasölu og til að bóka borð í veitingahúsi Landnámsseturs

Klukkan

(Þriðjudagur) 17:00 - 19:00



X