Nóvember, 2019
Nánari upplýsingar
Dagskrá til heiðurs minningu Þorsteins frá Hamri. Sagt verður frá skáldinu og lesið úr verkum hans. Að þessu ljóða- og sagnakvöldi koma einstaklingar úr Borgarnesi og Reykjavík. Til máls taka: Guðrún
Nánari upplýsingar
Dagskrá til heiðurs minningu Þorsteins frá Hamri. Sagt verður frá skáldinu og lesið úr verkum hans.
Að þessu ljóða- og sagnakvöldi koma einstaklingar úr Borgarnesi og Reykjavík.
Til máls taka: Guðrún Nordal, Þórarinn Jónsson, Vigdís Grímsdóttir, Theodór Þórðarson, Ástráður Eysteinsson, Sigurbjörg Þrastardóttir, Valdimar Tómasson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir.
Þann 1. október sl. var haldinn í Iðnó stofnfundur nýs félags sem ber heitið Arfur Þorsteins frá Hamri. Markmið félagsins er að sýna arfleifð Þorsteins ræktarsemi sem og þeim menningararfi sem hann tók í fang sér. Félagið mun standa fyrir ýmsum viðburðum, einkum á ævislóðum Þorsteins, í Borgarfirði og á höfuðborgarsvæðinu.
Dagskráin hefst kl. 20 og stendur í rúma klukkustund, aðgangur er ókeypis
Klukkan
(Fimmtudagur) 20:00 - 21:00