Desember, 2018

08des20:0021:30Kyrrlát Jól með KK & Ellen kl. 20:00

Nánari upplýsingar

Verða á Sögulofti Landnámsseturs Íslands 8. desember kl. 20:00.

Um jólin 2005 gáfu systkinin KK & Ellen út sinn fyrsta sameiginlega disk “Jólin eru að koma”. Platan varð strax mjög vinsæl sökum einfaldleikans sem þar birtist og veitti hvíld frá ysi og þysi nútíma samfélags. Síðan hafa þau haldið tónleika um hver jól víðs vegar um landið. Í ár hverfa þau aftur til einfaldleikans sem einkenndi fyrstu plötuna þeirra: Einn gítar og þau tvö.

Einungis er hægt að bóka miða á www.tix.is
Miðaverð er 4.500 kr

Hægt er að panta borð fyrir tónleika í veitingahúsi Landnámsseturs í síma 437-1600 eða landnam@landnam.is

Klukkan

(Laugardagur) 20:00 - 21:30



X