Janúar, 2019

24jan18:0022:00Borgarnes Film Freaks Opnunarkvöld

Nánari upplýsingar

Stærri, skrýtnari og með enn meira popp – BFF Borgarnes Film Freaks snúa aftur!

Dagana 24.-26. janúar halda Borgarnes Film Freaks í annað sinn kvikmyndahátíð í Borgarnesi.

Þessa þrjá daga gefst gestum tækifæri á að sjá ferskar og áhugaverðar kvikmyndir, heimildarmyndir og stuttmyndir sem koma hvaðanæva að úr heiminum. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá þar sem hvert sýningarkvöld hefur sitt þema.
Leikstjórar kvikmynda ræða um verkin sín og gestir fá að spyrja þá um allt milli himins og jarðar.

Hátíðin er haldin á Sögulofti Landnámsseturs Íslands og í félagsmiðstöðinni Óðal sem var lengi vel kvikmyndahús Borgnesinga.

Komdu og upplifðu kvikmyndir sem þú myndir aldrei annars sjá í þægilegu og öðruvísi kvikmyndahúsi.

Gjaldfrjálst er á öll sýningarkvöld og popp í boði fyrir þá sem deila hátíðinni á samfélagsmiðlum!

Allir velkomnir! (Börn yngri en 12 verða að vera í fylgd með fullorðnum).

Nánar hér: BFF

Klukkan

(Fimmtudagur) 18:00 - 22:00



X